Í áfanganum er unnið með Evrópulöndin og rætt um helstu borgir og sérkenni þeirra. Fyrir áhugasama er hægt að nýta sér Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í þeim tilgangi að nálgast viðfangsefnið út frá tónlist.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
löndum sem tilheyra Evrópu
nöfnum höfuðborga í Evrópu
helstu kennileitum í Evrópu
vinsælum ferðamannastöðum í Evrópu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina á milli landa sem tilheyra Evrópu
leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
nálgast viðfangsefni á mismunandi hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í umræðum um Evrópulöndin
lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar í umhverfinu.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.