Starfsnám gefur nemendum tækifæri til þess að kynna sér ýmis störf og mismunandi vinnustaði. Námið felur í sér að nemendur þjálfist í að beita mismunandi aðferðum og verklagi. Starfsnám fer fram í skóla og á vinnustað. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður skýrari.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
fjölbreyttum vinnustöðum
fjölbreyttum starfsheitum
mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
mæta til vinnu á réttum tíma
fylgja fyrirmælum
fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
fylgja samskiptareglum á vinnustað
fylgja öryggisreglum á vinnustað.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í atvinnulífinu
hafa yfirsýn yfir mismunandi störf og starfsvettvang
þekkja mismunandi starfsheiti og átta sig á hlutverkum sem felst í þeim
tilheyra starfsmannahópi.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu. Áhersla er lögð á mætingu og ástundun.