Í áfanganum fá nemendur fræðslu um þá möguleika sem bjóðast að loknu námi varðandi frekara nám, störf og áhugamál. Fjallað er um mismunandi búsetuform, færslu heimilisbókhalds, áætlanir um matarinnkaup, skipulagningu heimilishalds og fleira tengt því. Þá er fjallað um réttindi, ábyrgð og skyldur einstaklinga sem borgara og þátttakenda í lýðræðissamfélagi. Einnig er fjallað um þátt stéttarfélaga og hlutverk þeirra í samfélaginu auk þess sem nemendur læra að lesa og skilja launaseðla. Jafnframt undirbúa nemendur útskrift að vori, skipuleggja fjáröflun og sameiginlegt ferðalag.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvað það þýðir að vera virkur og ábyrgur þátttakandi í lýðræðissamfélagi
hvað þarf til að búa í sjálfstæðri búsetu
hvaða möguleika hann hafi til frekara náms
hvar hann leitar eftir starfi og hvaða leiðir hann hefur til að fá það starf sem hann óskar eftir
mikilvægi frístundastarfa og félagslegrar virkni
heilsusamlegu líferni
skipulagningu útskriftar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
halda heimilisbókhald
gera áætlanir um innkaup
framkvæma þrif á heimili
leita eftir upplýsingum á netinu um opinbera þjónustu
lesa launaseðil
lesa innihaldslýsingar með tilliti til hollustu
undirbúa og skipuleggja merkisviðburði eins og útskrift.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta möguleika sína hvað varðar nám, atvinnu, búsetu og áhugamál
skipuleggja heimilishald
nýta sér tómstunda- og félagsstörf sem henta
búa til eigin ferilskrá
njóta samveru við aðra og njóta líðandi stundar
lifa heilbrigðu lífi
undirbúa og skipuleggja merkisviðburði eins og útskrift.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu. Áhersla er lögð á mætingu og ástundun.