Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1476781366.2

    Vinnustaðir
    STAR1VS05(18)
    28
    starfsnám
    Vinnustaðir
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    18
    Í áfanganum fá nemendur tækifæri til að kynna sér mismunandi vinnustaði. Við val á vinnustöðum er tekið mið af óskum nemenda. Starfsnámið er skipulagt í samráði við vinnuveitendur og hefur kennari eða annar starfsmaður skólans umsjón með starfsnáminu. Nemendur vinna eftir vinnulistum sem taka mið af aðstæðum hverju sinni.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • fjölbreyttum vinnustöðum
    • undirstöðuþáttum þess vinnustaðar sem hann kýs í sínu starfsnámi
    • þeim áhöldum, tækjum og tólum sem ætlast er til að viðkomandi nýti sér eða meðhöndli á vettvangi
    • hættum sem geta verið í starfsumhverfinu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
    • vinna sjálfstætt eða undir leiðsögn
    • fylgja fyrirmælum
    • fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
    • fylgja samskiptareglum á vinnustað
    • koma sér til og frá vinnu á réttum tíma.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka þátt í atvinnulífinu
    • biðja um aðstoð ef þess þarf
    • tilheyra starfsmannahópi.
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu. Áhersla er lögð á mætingu og ástundun.