Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1476783418.83

    Lestur og læsi
    ÍSLE1TL05(11)
    39
    íslenska
    Læsi, ritun, tjáning
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    11
    Áhersla er lögð á læsi í víðu samhengi, s.s. á bókstafi og hljóð, umhverfi, tákn, reglur, samskiptamiðla, hugtök, tjáskipti, tilfinningar, lesefni og samskipti. Vinnuferlið miðast við að efla færni og sjálfsmynd nemenda til að takast á við lífið í framtíðinni, m.a. að efla samskiptalæsi og umhverfislæsi í þeim tilgangi að nemendur verði virkari og hæfari þátttakendur í jafnréttis- og lýðræðissamfélagi. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, sjálfshjálparbækur, íslenska tónlist og fjölbreytt verkefni.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugtakinu læsi í víðu samhengi
    • mikilvægi tjáningar og skynjunar
    • ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
    • mismunandi tjáskiptaleiðum
    • mikilvægi lesturs og bókmennta.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nýta sér upplýsingar á stafrænum miðlum
    • tjá sig með fjölbreyttum leiðum
    • vinna með texta sem hann hefur lesið og/eða hlustað á
    • taka þátt í umræðum
    • nýta sér leiðréttingarforrit og ýmiss hjálpargögn til verkefnavinnu, s.s. talgervla og tjáskiptaforrit
    • lesa upp og/eða tjá sig fyrir framan aðra
    • lesa og/eða hlusta á texta sér til gagns og gleði.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér læsi í víðu samhengi
    • auka sjálfstraust sitt og trú á eigin málfærni í tjáningu og/eða ritun
    • hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
    • lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram í útvarpi, sjónvarpi og í netmiðlum
    • lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
    • tjá eigin skoðanir
    • lesa í ýmsa texta, s.s. bækur, fréttir og fræðigreinar með eða án aðstoðar.
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.