Áfanganum er ætlað að veita gagnlegan grunn í jarðfræði. Meginþættir efnisins eru flekakenningin, innræn og útræn öfl. Rauði þráðurinn í áfanganum eru ferli inni í jörðinni og á yfirborði hennar. Tekin eru fyrir saga flekakenningarinnar og megin innihald, þ.e. hvernig kenningin skýrir eldvirkni, jarðskorpuhreyfingar, skjálftavirkni og jarðhita á Íslandi. Fjallað er um íslenskar og erlendar eldstöðvar, eldstöðvakerfi, goshegðun og gosefni. Uppbygging landsins vegna eldvirkni skýrð. Einnig er fjallað um veðrun og rof.
LÆSI2NÁ10
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
öllum grundvallarhugtökum jarðfræðinnar sem eiga við um innræn og útræn öfl
tektóník svo sem flekahreyfingum og mismunandi flekamörkum
hvernig berg myndast og þekkja helstu bergtegundir, frumsteindir og holufyllingar
hvernig eldvirkni hefur byggt upp landslag og þekkja mismunandi gerðir gosa, gosefna og eldstöðva
jarðskjálftum, myndun og afleiðingum
jarðhita og nýtingu hans
grunnvatni
veðrun og rofi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þekkja virk svæði út frá flekakenningunni
horfa í kringum sig og greina á milli mismunandi bergtegunda, holufyllinga og steinda
átta sig á hvar í heiminum má búast við eldvirkni og greina á milli mismunandi tegunda gosa og eldvirkra svæða
átta sig á hvar jarðskjálftar verða, hvernig stærð þeirra og upptök eru ákvörðuð
átta sig á mikilvægi grunnvatns og jarðhita
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
þekkja landið og skilja hvernig það hefur myndast og mótast síðustu milljónir ára
átta sig á því hvað Ísland er frábær vettvangur til rannsókna á jarðfræði og jarðeðlisfræði t.d. í sambandi við jarðhita, jarðskjálfta og eldvirkni
geta lesið út úr myndum og loftmyndum alls kyns jarðfræði fyrirbrigði og útskýrt fyrir öðrum
standa fyrir framan annað fólk og útskýrt jarðfræði bæði munnlega eða með stuðningi mynda
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.