Efni þessa áfanga er eðlisfræði raf- og segulsviða og fyrirbæra þeim tengdum. Umfjöllunin er bæði formlegri og óhlutstæðari en í fyrri áfanga um rafrásir. Meginefni áfangans er rafsvið, þéttar, lögmál Gauss, rásir með þéttum, riðstraumur, segulsvið og samband raf- og segulsviðs, span og lögmál Faradays og rafsegulbylgjur. Lögð er áhersla á verklegar æfingar sem tengjast efni áfangans.
STÆR3HR07/STÆR3HL07 og EÐLI3TV06
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Gausslögmálinu fyrir rafsvið
skilgreiningu rafsviðs og rafflæðis
skilgreiningu á spennu og spennumun í rafsviði
þéttum
fyrirbærinu þétti og geti reiknað rýmd og orkuinnihald einföldustu þétta
rafsviði og spennu
beitingu á Gausslögmáli til þess m.a. að reikna út rafsvið í plötuþétti
segulsviði
rafagnageislum
rafsegulöldum
hegðun rásar með þétti og mótstöðu
síseglum og segulsviði
sambandi straums og segulsviðs
lögmáli Laplace og lögmáli Biot-Savart
kröftum sem verka á hlaðnar agnir í rafsviði og segulsviði
skilgreiningu segulflæðis og geti beitt lögmáli Faradays um span
sjálfspani og hegðun sveiflurásar
riðstraumi
riðstraumi og eiginleikum riðstraumsrása með raðtengingu viðnáms, spólu og þéttis
rafsegulöldum og tengslum þeirra við jöfnur Maxwells
samliðun ljóss sem farið hefur í gegnum raufagler og notkun raufaglers við litrófsgreiningu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita Gausslögmáli fyrir rafsvið
fjalla um rafsvið og spennu
reikna rásir með þéttum
gera grein fyrir segulsviði
fjalla um rafagnageisla
leysa verkefni um span
leysa ýmis verkefni þar sem riðstraumur kemur við sögu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita skipulegum aðferðum við að leysa verkefni úr þeim efnisþáttum sem teknir eru fyrir í áfanganum
gera verklegar tilraunir úr efninu, skrá niðurstöður sínar skipulega og vinna úr þeim
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.