Áfanginn er skilgreindur sem undirbúningur undir frekara nám í lífrænni efnafræði og lífefnafræði s.s. nám í heilbrigðisgreinum á háskólastigi, líffræði, erfðafræði og líftækni en á þessum sviðum er undantekningalaust lögð veruleg áhersla á þessar greinar. Í áfanganum eru helstu sérkenni lífrænna efna skoðuð, fjallað er um helstu flokka þeirra, nafnakerfi, eðlis- og efnaeiginleika og helstu efnahvörf og hvarfaganga. Mikil áhersla er lögð á efnafræðilega útreikninga og ritun mismunandi byggingarformúla í öllum helstu efnaflokkum. Reynt er að tengja efnið reynsluheim nemenda á sem fjölbreytilegastan hátt með skýrskotun til daglegs lífs og óhjákvæmilegrar efnanotkunar nútímans. Einnig kynnast nemendur tölvuforritum sem gera þeim kleift að samtengja og skoða þrívíddarmyndir flókinna lífrænna sameinda og læra að hagnýta sér upplýsingatækni á sviði lífrænnar efnafræði. Ennfremur eru gerðar nokkrar verklegar æfingar sem eru til þess fallnar að auka skilning nemenda á efnahvörfum og hvarfagangi þeirra.
EFNA3AB06
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi svigrúmablöndun kolefnis (sp3, sp2 og sp)
helstu gerðum og samsetningu lífrænna efnatengja
helstu gerðum virkra hópa lífrænna efnasambanda
eðlis- og efnafræðilegum eiginleikum helstu flokka lífrænna efna svo sem alifatískra og arómatískra kolvetnissambanda, alkahóla, halókolefna, etera, aldehýða, ketona, karboxylsýra og afleiða þeirra svo sem estera, anhýdríða, amíða og halíða, amína og alkalóíða
IUPAC nafnakerfinu
helstu efnahvörfum og hvarfagöngum lífrænna efna svo sem skiptihvörfum (SN1 og SN2), fráhvörfum (E1 og E2), álagshvörfum samhverfra og ósamhverfra alkena, rafsæknum skiptihvörfum arómata
fjölliðun nokkurra algengra samtengdra efna
efnahvörfum milli mismunandi flokka lífrænna efna og geti ritað efnahvörf fyrir myndun helstu flokka lífrænna efna
oxun og afoxun lífrænna efna
nota Ka og Kb til að reikna pH í lausnum lífrænna sýra og basa