Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1479394991.66

    Vélstjórn 1
    VÉLS1AA05
    2
    Vélstjórn
    Vélstjórn AA
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Farið í uppbyggingu og virkni brunavéla. Öll kerfi og íhlutir teknir fyrir. Nemendur þjálfaðir í keyrslu véla og umgengni um öll kerfi sem tilheyra þeim þannig að þeir séu hæfir til að stjórna og bera ábyrgð á keyrslu þeirra. Tekin fyrir þau öryggisatriði sem þarf að hafa í hávegum fyrir vélstjóra og þá sem annast vélbúnað og vinnustaði vélstjóra.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • vinnuhringjum brunavéla.
    • gerðum, uppbyggingu og eldsneyti aflvéla.
    • uppbyggingu, notkun og eiginleikum hæg og hraðgengra bulluvéla.
    • aðstreymi lofts og eldsneytis í Ottó og dísilvélum.
    • skipsvélakerfum og uppbyggingu þeirra.
    • kæliþörf brunavéla.
    • gangsetningakerfum bulluvéla og þeim reglum sem gilda um þau.
    • umhirðu og umgengni véla og vélarúma.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nafngreina helstu íhluti véla og lýsa hlutverki þeirra.
    • nota handverkfæri á réttan hátt.
    • lesa úr vganga um vélar og verkstæði með tilliti til hreinlætis og öryggisélateikning.um.
    • ganga um vélar og verkstæði með tilliti til hreinlætis og öryggis.
    • undirbúa dísilvél fyrir gangsetningu og gangsetja hana.
    • ganga frá vél og vélarúmi eftir stöðvun og gera vélarúm frostklárt.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • teiknað upp og útskýrt vinnuhringi tví- og fjórgengisvéla, dísil- og Ottóvéla.
    • rekja og teikna upp helstu vélakerfi.
    • unnið sjálfstætt á vélaverkstæði m.t.t umgengni og öryggismála
    • undirbúið vél fyrir gangsetningu og ræst hana.
    • útskýrt bæði ytri og innri kælibúnað véla.
    Verkleg og bókleg próf