Gólf– og veggjagrindur, einangrun, klæðningar, rakavarnarlag, sperrur
Samþykkt af skóla
2
16
AV
Í áfanganum lærir nemandinn um smíði staðbyggðra timburhúsa með áherslu á undirstöður, burðarvirki, klæðningu, einangrun, uppsetningu glugga og hurða, auk almenns frágangs. Nemandinn lærir um útfærslu einstakra byggingarhluta, efnisval, staðsetningu á stoðum, bitum og sperrum ásamt öryggis- og gæðamálum. Áfanginn er að mestu leyti verklegur þar sem nemendinn fær þjálfun í almennum verkþáttum húsasmíða eins og meðferð áhalda og tækja, notkun smíðisfestinga og yfirborðsmeðferð. Áfanginn er á námsbraut í húsasmíði og lögð er áhersla á sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
TRÉS2NT04 og TRÉS2PH10
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
burðarvirki timburhúsa
einangrun og mikilvægi vandaðs frágangs á henni
ísetningu og frágangi glugga og hurða
tilgangi, uppsetningu og frágangi á utanhússklæðningum á veggi og þök
öryggismálum á byggingavinnustað
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota og vinna með öryggisbúnað
velja verkfæri við hæfi og vinna með þau
smíða burðarvirki timburhúsa
vinna eftir teikningum
nota áhöld til mælinga og uppmerkinga
setja glugga og hurðir í veggi
klæða timburvirki
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
smíða timburhús eftir teikningum og verklýsingum
leysa af hendi fjölbreytt verkefni á byggingavinnustað
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.