Farið er yfir efnauppbyggingu hitafastra og hitadeigra plastefna. Æfð greining plastefna. Æfðar suður og límingar jafnhliða greiningu bæði á nýju efni og ökutækjahlutum. Kynntir möguleikar við mótun plastefna við smíði hluta í yfirbyggingar ökutækja. Áhersla er lögð á hættur af reyk og uppgufun efna í plastviðgerðum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
efnauppbyggingu hitafastra og hitadeigra plastefna
möguleikum við mótun plastefna við smíði hluta í yfirbyggingar ökutækja
hættum af reyk og uppgufun efna í plastviðgerðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
bræða saman mismunandi gerðir plastefna með heitu lofti og með rafhitun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lýsa efnauppbyggingu plastefna og greina þau í undir- og yfirflokka
greina plastefni samkvæmt leiðbeiningum framleiðenda
velja viðgerðaraðferð eftir eðli efnisins
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.