Farið yfir ýmsar gerðir rafala, íhluti þeirra og spennustillingu, viðhald og viðgerðir. Yfirlit yfir hlutverk íhluta, prófanir þeirra og hleðslukerfa í heild þ.m.t. rafgeyma, bæði hefðbundna blýsýrurafgeyma og aðrar gerðir rafgeyma svo sem Nikel-metal, hydrid og Li-ion gerðir rafgeyma sem notaðar eru í nýorkubifreiðum.
Farið yfir ýmsar gerðir rafhreyfla sem notaðir eru í rafbifreiðum. Farið yfir uppbyggingu rafhreyfla. Farið yfir gerð og uppsetningu stýrikerfa fyrir rafbifreiðar. Yfirlit yfir hlutverk íhluta og prófanir þeirra. Nemendur vinna við mat og prófun, helstu hluta rafbúnaðar. Skoðuð ýmis atriði sem tengjast orkunýtni og áhersla lögð á útreikninga og stærðagildi í rafbifreiðum við ýmsar aðstæður. Farið er yfir áhrif mengunar með hliðsjón af gróðurhúsaáhrifum. Áhersla á meðferð mæli- og prófunartækja og hættur samfara umgengni um rafbúnað.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ýmsum gerðum rafala, íhlutum þeirra og spennustillum
ýmsum gerðum rafgeyma þ.m.t. í rafbifreiðum
hættum í umgengni um háspennurafbúnað ökutækja
reglum um meðferð og notkun mæli- og prófunartækja
reglum um vinnu við háspennukerfi í ökutækjum
ýmsum gerðum rafhreyfla og rafhreyfibúnaðar í ökutækjum
heildarvirkni rafbúnaðar rafbifreiða
hættum við vinnu við rafbifreiðar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
mæla straumframleiðslu og hleðsluspennu
prófa hleðslukerfi í ökutækjum
taka rafala úr ökutæki, prófa, gera við og setja aftur í ökutækið
prófa og hirða um rafgeyma
mæla straumnotkun og spennufall rafkerfis rafbifreiða
taka rafgeymi úr bifreið með háspennubúnað
prófa rafhreyfla rafbifreiða
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lýsa uppbyggingu hleðslukerfa í rafknúnum ökutækjum
lýsa virkni stýringar rafbúnaðar rafbifreiða
lýsa virkni og gerð helstu rafhreyfla í ökutækjum
lýsa aðferðum við að aftengja háspennubúnað frá lágspennubúnaði í rafbifreiðum
lýsa ýmsum stjórnbúnaði rafhreyfla og rafgeyma
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.