Í áfanganum verður fjallað um tölvuleiki í víðu samhengi og skoðað hvernig tölvuleikir tengjast hinum ýmsum greinum. Markmiðið er að gefa nemendum dýpri innsýn í tölvuleiki, þróun þeirra og hlutverk í nútímasamfélagi sem áhugamál, iðnaður og listgrein. Byrjað verður á að fara yfir sögu tölvuleikja og gefa nemendum yfirsýn yfir efnið. Í framhaldinu verða fræðin á bakvið leikina skoðuð og uppbygging þeirra. Nemendur kynnast helstu störfum við gerð tölvuleika. Farið verður í tilgang tölvuleikja, mismunandi virkni spilenda og samanburð við aðra leiki eða afþreyingu. Nemendur kynnast því hvernig kenna má í gegnum tölvuleiki. Í lok áfangans fá nemendur tækifæri til að nýta þekkingu sína til að þróa sína eigin leikjahugmynd og kynna hana fyrir öðrum.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þróun og sögu tölvuleikja
möguleikum og takmörkunum tölvuleika
uppbyggingu tölvuleikja og áhrif þeirra í samfélagslegu samhengi
tilgangi tölvuleikja
virkni þeirra sem spila tölvuleiki
störfum við gerð tölvuleikja
samanburði við aðra afþreyingu
námi í gegnum tölvuleiki (e.: computer based learning)
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tengja tölvuleiki við ólík fræðisvið
virkja hugmyndaflugið á gagnlegan hátt
að þróa og kynna hugmyndir í samstarfi við aðra
líta á tölvuleiki frá mismunandi sjónarhornum og í víðu samhengi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta tekið þátt í verkefnavinnu og umræðu um tilgang tölvuleikja
kynna eigin vinnu
geta tekið þátt í verkefnavinnu og umræðu um gerð tölvuleikja
geta tekið þátt í verkefnavinnu og umræðu um uppbyggingu tölvuleikja
geta tekið þátt í verkefnavinnu og umræðu um tölvuleiki sem aðferð til náms eða kennslu
Námsmat er símat sem byggir á verkefnum og þátttöku í kennslustundum, atburðum og heimsóknum.