Farið er yfir helstu teikniaðferðir eins og flatarteikningu, fallmyndun, ásmyndun, yfirborðsútflatningar og fríhendis teikningu. Notkun teikniáhalda og mælitækja. Lestur vinnuteikninga.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi teikniaðferðum
gerð útflatninga á einföldum smíðahlutum
upplýsingamiðlun með teikningum
lestri teikninga
notkun teikni- og mæliáhalda
frágangi á vinnuteikningum
gerð útflatninga af einföldum smíðahlutum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa teikningar
gera útflatninga af einföldum smíðahlutum
málsetja teikningar þannig að aðrir geti smíðað eftir þeim
teikna smíðahlut fríhendis og málsetja hann þannig að viðunandi sé
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta teiknikunnáttu í starfi
miðla upplýsingum á teikniformi
vinna samkvæmt þeim stöðlum sem gilda um frágang teikninga