Nemendur læri MIG/MAG suðu í efnisþykktum 2-6mm. Nemendur læri grunnfærni í suðuaðferðum og þeir þekki muninn á suðuaðferðum kostum þeirra og göllum. Þeir geti soðið stál, ryðfrítt stál og ál.
MLSU1RS03 og MLSU1LS03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
suðubúnaði fyrir MIG/MAG suður
gastegundum og gasblöndum sem notaðar eru við suður
hlutverki gassins og rétt streymi þess
öryggismálum á borð við hættu vegna bruna, geislunar, reyks, ósonmyndunar og mikilvægi hlífðarfatnaðar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
stilla suðutæki eftir því hvað skal sjóða
setja í rúlluvír og velja spíssa eftir suðuvírum
stilla gasflæði
stilla upp suðustykkjum fyrir suðu
fara eftir öryggisreglum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stilla suðutæki fyrir mismunandi efnisþykktir með mismunandi suðuraufum
velja vír fyrir mismunandi efni
mæla og stillt gasflæði með mæli
gegnumsjóða 3mm stálplötu í suðustöðum PA-BW og PG-FW
meta algengustu suðugalla og greina orsakir þeirra