Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1482327377.64

    Rennismíði 1
    RENN1GR05
    1
    Rennismíði
    Rennismíði-grunnáfangi
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Kennt er á hefðbundinn rennibekk, fræsivél, borvél og CNC-stýrðar spóntökuvélar. Kennslan er einstaklingsmiðuð og eru öryggismál veigamikill þáttur námsins. Samhliða verklegri kennslu er bókleg kennsla. Námið byggir á verkefnalausnum, verk- og bóklegum.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • öryggismálum og umhirðu spóntökuvéla
    • mismunandi hlutum spóntökuvéla, tilgangi þeirra og möguleikum
    • möguleikum spóntökuvéla við mismunandi verkþætti
    • helstu uppstilliaðferðum í rennibekk og fræsara
    • muninum á mismunandi gerðum rennistála og í hvaða efni þau eru notuð
    • helstu kerfum sem CNC vélar bjóða upp á
    • hvaða meginmunur er á hefðbundnum spóntökuvélum og CNC stýrðum vélum
    • mikilvægi þess að gæta ávallt fyllsta öryggis þegar unnið er með spóntökuvélum
    • umgengni við kælivökva á spóntökuvélum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leysa einföld verkefni í rennibekk innan við 0,1 mm málvik
    • skrúfuskera með tappa og bakka í rennibekk
    • skrúfuskera öxul með skrúfuskurðarstáli
    • fræsa mismunandi kanta á öxul ásamt því að fræsa kílspor
    • sinna umhirðu rennibekks og fræsara á fullnægjandi hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gæta ávallt fyllsta öryggis þegar unnið er við spóntökuvélar
    • reikna út snúnings- og skurðarhraða samkvæmt töflu
    • • Finna réttan skurðar- og snúningshraða og rétt verkfæri við lausn mismunandi verkefna
    • leita ráða hjá öðrum þegar það á við
    • gera stutta greinargerð um verkefni sem unnin eru þar sem fram koma upplýsingar um efnistök, véla- og verkfæraval, framvindu verks og vinnslutíma
    Verkleg og bókleg próf