Að loknu námsefni áfangans eiga nemendur að hafa fræðst um sögu plastsins, helstu kosti og galla plastefna til notkunnar í málmiðnaði og hafa gert lítilsháttar tilraunir á vatnsdrægni og málbreytingum þeim er verða á íhlutum vélbúnaðar sem smíðaðir eru úr algengustu plastefnum á hverjum tíma.
Einnig eru nemandanum kynntar helstu framleiðsluaðferðir á plastefnum og möglega nýjustu efni sem þar eru þróuð og skoðuð endurvinnsla og förgun.
Nemandinn skal í áfanganum kynnast meðferð og vinnslu plastefna með annaðhvort verklegu námi innan skóla eða heimsókn í fyrirtækji í plastiðnaði.
Nemendur framkvæmi samsetningar á plaströrum með límingum og suðum. Nemendur steypi hluti úr trefjaplasti
Einnig skal kynna nemendum eiginleika áls, eirs og mjúkmelma til notkunar í vélbúnaði og geti þeir borið saman eiginleika þessara efna við plastefnin.
EFNM1MT05 og RENN2MT05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
algengustu nöfn plastefna og skýringar á þeim
helstu tegundir plasts og eiginleika þeirra
meginatriði varðandi endurvinnslu á plasti
helstu staðla um plast
hvaða plastefni standast kröfur matvælaiðnaðar samk, stöðlum
hvar nota skal plastefni í vélbúnaði
helstu afbrigðum eirmelma, kosti þeirra og galla
líklegu notkunarsviði þeirra málma sem um er fjallað
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja plast og eða annað efni sem notast skal til smíða á fóðringum eða samsetningum á vélbúnaði
velja efni er hæfir þörf hverju sinni
ta sótt efnisupplýsingar í staðla og nýtt þær
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta hvaða plastefni á og eða má nota til ýmissa algengra verkefna er varða viðhald og uppsetningu vélbúnaðar við margvíslegar aðstæður.
þekkja þau frávik er verða í mældum stærðum íhluta vegna umhverfisáhrifa og meta efnisval og málvik íhluta samkvæmt því