Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1482334524.76

    Stýrtækni málmiðna 1
    STÝR1MT03
    1
    Stýritækni málmiðna
    Stýrtækni málmiðna
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Að loknu námi í áfanganum eiga nemendur að þekkja grundvallaratriði í loftstýringum og vera færir um að þjóna loftkerfum og setja upp kerfi eftir teikningum og starfsritum. Á sama hátt eiga þeir að geta rakið uppsett kerfi og vera færir um að finna bilanir og framkvæma viðgerð.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • notkun lofts sem aflgjafa
    • táknum sem notuð eru í teikningum fyrir loft og vökva samkvæmt ISO-stöðlum
    • samspil flatar, þrýstings og krafts
    • öryggisatriði við notkun þrýstilofts
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • umgangast vinnuloftskerfi með tilliti til notkunar fyrir loftstýrikerfi
    • nota tákn sem notuð eru við loftstýrikerfi
    • umgangast vinnuloft út frá þrýstingu og raka
    • umgangast þrýsti kerfi út frá öryggisatriðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • þjónusta vinnuloftkerfi varðandi raka, síun og hitastig
    • stilla vinnuþrýsting, tímaliða og hraða loft-tjakka
    • stilla smurtæki
    • rekja loftstýrikerfi og gera sér grein fyrir starfsemi þeirra
    • nota starfs- og stöðurit til þess að ráða bót á bilunum í loftstýrikerfum
    Verklegt og bóklegt