Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1482408019.7

    Lagnatækni
    LAGN2VG03
    1
    Lagnatækni
    Vökvar og gös
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Í áfanganum læra nemendur um lagnakerfi fyrir vökva og gös. Nemendur fá innsýn í hvernig kerfi eru lögð og hvað er gert til að lágmarka viðnám og hljóðmyndun í kerfunum. Einnig verður farið yfir umgengni og þjónustu við kerfin með tilliti til síunar og þrifa.
    Æskilegir undanfarar: VÖKT1GR03, STÝR1MT03, VÉLS1AA05, VÉLS1AB07
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • öllum helstu lagnaefnum sem notuð eru í iðnaði og helstu notkunarsvið þeirra (stál, kopar, ál, plast)
    • efnis- og stærðarvali lagna m.t.t. tæringar, flutningsgetu (ryð, galvanísk tæring, kavítasjón)
    • jafnstreymislíkingu fyrir massa og Bernoulli líkingu
    • lagstreymi / iðustreymi, Reynolds tölu
    • þrýstifall í lokum og búnaði (kv-gildi)
    • algengustu vökvadælum og mun á raðtengingu og hliðtengingu í lagnakerfi
    • öryggiskröfurm fyrir lagnakerfi vökva og gass
    • þensluáhrifum vegna hitabreytinga vökva og gass í lögnum
    • helstu þéttiefnum fyrir samsetningar fyrir mismunandi vökva og gas
    • helstu lagnatáknum fyrir vökva og gas
    • helstu gerðum samsetninga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • velja viðeigandi lagnaefni fyrir mismunandi aðstæður út frá efni, stærðum, tæringum og öryggismálum
    • áttasig á þensluáhrifum þeirra efna sem eru í lagnakerfum með tilliti til öryggismála og reksturs kerfanna
    • lesa úr táknum og teikningum
    • velja viðeigandi samsetningar og þéttingar fyrir vökva og gas
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leggja og tengja einföld lagnakerfi
    • skipta um síur í lagnakerfum og meta ástand tenginga og þéttinga
    • teikna upp einföld kerfi og notað þá staðla og tákn sem eru í gildi
    Verklegt og bóklegt