Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1482417587.53

    Rökrásir 2
    RÖKR3AB03
    1
    Rökrásir
    Rökrásir 2
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Í áfanganum er fjallað um stærri iðntölvur og eiginleika þeirra. Einnig helstu gerðir íhluta iðntölvustýringa og forritun þeirra. Nemendur fá kennslu og þjálfun í forritun iðntölva og notkun ýmissa hjálpartækja við slíka forritun, svo sem forritunartækja, PC-tölva og flæðimynda. Þá fá nemendur æfingu í að tengja ytri búnað við iðntölvu. Nemendur kynnast notkun aðgerðarskjáa, regla (P, PI og PID) og skynjara (hliðræna og stafræna). Farið er í reikniaðgerðir, skiftiregistur og teljara.
    RÖKR2AA03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • minnisgerðum iðntölva og eiginleikum þeirra, vinnsluhraða og vinnsluferli iðntölva
    • öllum helstu skipunum stafrænnar virkni og einfaldrar hliðrænnar virkni
    • möguleikum samtengingu iðntölva með gagnabrautum
    • staðlinum EN61131 og notkun hans
    • aðgerðaskjám og notkun þeirra
    • notkun skynjara, regla og reikniaðgerða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota iðntölvu til að stjórna tækjum og búnaði
    • teikna upp myndir og kalla fram raunverulega atburði, magn, hita, stöðu o.fl. frá iðntölvu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • forrita iðntölvu í formi laddermynda, skipanalista og virkniblokka, breytt stýrimyndum segulliða- og rafeindastýringa í iðntölvuforriti með forritunartæki og PC-tölvu
    • skrifa flæðirit fyrir stýringar og forritað iðntölvu samkvæmt því
    • tengja iðntölvu við ytri búnað
    • vinna með hliðræn (analog) og stafræn (digital) merki
    Verklegt og bóklegt