Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1482419912.93

    Véltækni 1
    VÉLT3AA03
    1
    Véltækni
    Véltækni 1
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Nemendur fá þjálfun í rekstri vélbúnaðar, öflun upplýsinga um ástand hans með mælitækjum og lestri úr upplýsingum og samanburði á þeim til þess að ná hagkvæmustu keyrslu niðurstöðum. Áfanginn er framhald af vél-, kæli- og stillitækni þar sem nemendur byggja ofan á fyrra nám.
    VÉLS2BA07, KÆLI1GR03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig afla má upplýsinga um ástand vélbúnaðar með mælitækjum
    • mati á upplýsingum, þ.e. samanburði mældra gilda við eðlilegt eða æskilegt ástand
    • hvernig setja má niðurstöður mælinga og athugana fram í skýrsluformi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gangsetja og reka mismunandi vélbúnað
    • gera verklegar æfingar og tilraunir með varmajöfnun í kælikerfi og skrá niðurstöður
    • gera verklegar æfingar og tilraunir með varmajöfnun í eimkerfi og skrá niðurstöður
    • gera verklegar æfingar og tilraunir með nýtni og afldreifingu miðflóttaaflsdælu og skrá niðurstöður
    • gera verklegar æfingar og tilraunir með nýtni og afldreifingu miðflóttaaflsdælu og skrá niðurstöður
    • gera verklegar æfingar og tilraunir með stillingu þensluloka og þrýstiliða kælikerfis og skrá niðurstöður
    • gera verklegar æfingar og tilraunir með afkastastýringu kælikerfis með mótþrýstiloka og skrá niðurstöður
    • gera verklegar æfingar og tilraunir með skrúfulínurit skips og skrá niðurstöður
    • gera verklegar æfingar og tilraunir með álagslínurit aðalvélar skips og skrá niðurstöður
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka ákvarðanir um viðbrögð ef niðurstöður mælinga á vélbúnaði gefa tilefni til
    • skrifa skýrslu þar sem æfingar og niðurstöður eru rökstuddar og sannaðar á skilvirkan hátt, nemanda og öðrum til gagns
    Verklegt og bóklegt