Vinnustaðanámið fer fram á almennri deild á sjúkrahúsi s.s. skurð- og lyflækningadeildum. Nemandinn vinnur jafnframt verkefni tengt viðfangsefnum vinnustaðanámsins. Kennari áfangans, sjúkraliði/leiðbeinandi og deildarstjóri bera sameiginlega ábyrgð á verklegu námi sjúkraliðanema. Nemandinn fylgir leiðbeinanda við öll almenn störf sjúkraliða og öðlast þjálfun í þeim. Í upphafi tímabils setur nemandinn sér persónuleg og fagleg markmið um vinnustaðanámið. Á meðan á vinnustaðanámi stendur skal nemandinn fylla út gátlista og ferilbók um unna verkþætti.
HJÚK3TV05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
athöfnum daglegs lífs (ADL) við umönnun sjúklinga á sjúkrahúsum
viðurkenndum reglum um smitgát og sýkingavarnir
faglegri umhyggju og samskiptum í hjúkrunarstörfum
mikilvægi eftirlits og mats á líkamlegu og andlegu ástandi sjúklings
mælitækjum og öðrum hjúkrunargögnum sem notuð eru í hjúkrunarstörfum
mikilvægi þagnarskyldu
réttindum sjúklinga samkvæmt lögum
undirbúningi sjúklings fyrir og eftir aðgerðir og rannsóknir
mikilvægi forgangsröðunar í hjúkrunarstörfum
sýnatökum og meðferð sýna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna eftir reglum um smitgát og sýnatökur
taka þátt í að mæla og skrá algengar athuganir hjá sjúklingum
nota helstu hjálpartæki og hjúkrunargögn á viðeigandi hátt
taka þátt í þverfaglegri samvinnu heilbrigðisstétta
forgangsraða eigin störfum
vinna samkvæmt hjúkrunarferli
hjúkra sjúklingi fyrir og eftir aðgerðir og rannsóknir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
velja viðeigandi hjúkrunarmeðferð hverju sinni og rökstyðja hana
virða og útskýra mikilvægi þagnarskyldu og trúnaðar við sjúkling
sýna hæfni í samskiptum við sjúklinga og samstarfsfólk
sýna faglega umhyggju í hjúkrun
meta sjálfsbjargargetu og þarfir sjúklingsins í athöfnum daglegs lífs
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.