Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1484664184.44

    Málmsmíði 2
    MLSM2MV07
    1
    Málmsmíði
    Málmsmíði málmiðna og vélstjórnar
    Samþykkt af skóla
    2
    7
    Nemendur vinna að verkefnum á verkstæði skólans. Nemendur samhæfa þekkingu, leikni, og hæfni sem þeir hafa öðlast í öðrum áföngum, eins og suðum, rennismíði, plötuvinnu, teikningu og vélstjórn við vinnu verkefna. Nemendur gera sér grein fyrir kostnaðarþáttum smíðaverkefna, gera áætlanir og staðreyna þær. Nemendur vinna samkvæmt teikningum og meta hvernig best er að vinna verk með tilliti til kostnaðar, öryggis, efnisvals og gæða. Nemendur þjálfast í hópstarfi og samvinnu sín á milli.
    MLSM1GR07,RENN1GR05, MALM1RS03, MALM1LS03, VÉLS1AA05, GRTE1FF07 og EFNM1MT05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Nemandi skal hafa öðlast þekkingu á notkunarmöguleikum smíðamálma
    • notkun á efnis-, styrktar- og málviksstöðlum fyrir málmsmíðar
    • samspili verkstæði skólans við lausn verkefna
    • hugtökum verkþáttagreiningar lokamarkmiðum og heildarskipulagningu smíðaverkefna
    • efnistök og aðferðum við hana
    • aðferðum við kostnaðargreiningu vinnu, efnis og vélanotkun
    • aðferðum við mat á nýtingu efnis.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Nemandi skal hafa öðlast leikni í að nýta sér þá þekkingu sem þeir hafa aflað sér í öðrum smíðaáföngum og beita við lausn verkefna
    • vinna að lausn verkefna sem krefjast samþættingar verkþátta
    • hafa gæðavitund í huga við sköpun og vinnu
    • vinna eftir teikningum
    • gæta fulls öryggis við vinnu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að samræma þá þekkingu sem hann hefur aflað sér í smíðaáföngum og beita við lausn verkefna
    • vinna sjálfstætt við lausn verkefna sem krefjast samþættingar verkþátta
    • skila vandaðri vinnu
    • gera verkþáttagreiningu og verkáætlun
    • gera kostnaðaráætlun
    • vinna sjálfsrætt og sem þáttakandi í hóp
    • vinna eftir teikningum og smíðalýsingum
    • velja verkfæri og tæki sem henta fyrir verkið
    • gæta fulls öryggis við vinnu og meta aðstæður
    Verklegt og bóklegt.