Farið yfir rafkerfi ökutækja: leiðslukerfi, hlutakerfi, íhluti og varbúnað. Æfingar í meðferð mæli- og prófunartækja og leit að prófunar- og viðgerðaupplýsingum. Verkefni í kerfisbundnum aðferðum við bilanaleit og úrlausnum vegna bilana og í skyndiviðgerð þar sem við á. Farið yfir reglugerðarákvæði um rafbúnað. Upprifjun á byggingarlagi, vélbúnaði og vinnuhætti dísilhreyfla. Farið yfir algengan rafbúnað og kerfi sem tengjast dísilhreyflum; forhitun, fæðidælubúnað og stýringar safngreinar innsprautunnar Farið yfir mæli- og prófunartæki og æfingar í notkun þeirra, m.a. notkun afgasgreinis. Áhersla á notkun viðgerðabóka og upplýsingagagna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
kröfum til rafkerfa ökutækja: leiðslukerfa, hlutakerfa, helstu íhluta og varbúnaðar
byggingarlagi, vélbúnaði og vinnuhætti dísilhreyfla
kröfum um hreinlæti og hættur í umgengni við háþrýstibúnað eldsneytiskerfa
helsta rafbúnaði og kerfum sem tengjast dísilhreyflum sérstaklega; ræsihitunarbúnað, ganghraðastjórnun, eldsneytisstjórnun og eldsneytisfæðibúnað
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita kerfisbundnum aðferðum við leit að bilunum í rafbúnaði
leita sér upplýsinga um rafbúnað í viðgerðarbókum og öðrum upplýsingagögnum
prófa rafbúnað og kerfi dísilhreyfla, sérstaklega forhitunarkerfi
finna bilanir og gera minniháttar viðgerðir
nota reyk- og afgasgreini
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lýsa rafkerfum ökutækja, virkni einstakra hluta í rafkerfum og fundið þá í ökutækjum
nýta fjölsviðsmæla við mat á rafbúnaði
lesa og túlka einföld tákn af sveiflusjá m.a. merki frá skynjurum
nýta skanna til að lesa upplýsingar frá stjórntölvu hreyfils
finna viðkomandi íhluti dísilkerfa í ökutækjum og lýst hlutverki þeirra
lýsa innstillingu eldsneytisspíssa
lýsa byggingu og virkni helstu gerða eldsneytisspíssa
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.