Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1486980048.86

    Frumkvöðlafræði og nýsköpun
    FRUM2NR05
    6
    frumkvöðlafræði
    hugmyndafræði nýsköpunar, rekstur fyrirtækja, viðskiptaáætlun
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn er valáfangi á bóknámsbrautum þar sem kynnt eru ýmis hugtök og viðfangsefni í viðskiptagreinum s.s. nýsköpun, vöruþróun, stefnumótun, markaðssetning, bókhald og ársreikningar. Áfanginn er hugsaður sem kynning á viðskiptagreinum í háskólanámi sem hjálpi nemendum að átta sig á hvort þeir vilja fara í frekara nám á því sviði. Nemendur sem velja áfangann taka þátt í keppninni Ungir frumkvöðlar þar sem lagt verður mat á raunhæfni og framkvæmd. Skýrsla sem unnin er í áfanganum verður metin af JA Iceland. Nemendur vinna sjálfstæð verkefni í hópum. Þeir vinna hugmyndavinnu við þróun vöru sem svarar þörf fyrir umbætur á tilteknu sviði sem þeir velja sjálfir. Lögð er áhersla á að hugmyndirnar séu raunhæfar. Nemendur nýta hugmyndir sínar til að setja fram viðskiptahugmynd og áætlun, vinna að stefnumótun og fjármögnun. Þeir vinna í hópum og stofna og reka eigið fyrirtæki. Hópurinn fjármagnar með útgáfu hlutabréfa, markaðssetja, framleiða og selja vöruna/þjónustuna á sölusýningu í Smáralind. Einnig nýtist verkefnið til þess að halda bókhald og gera markaðsáætlun til að koma vöru á framfæri. Í lok áfangans eru fyrirtækin lögð niður og gerð upp. Gert er ráð fyrir að farið verði í nokkrar heimsóknir og námskynningar í stofnanir og fyrirtæki. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð og virka þátttöku nemenda. Kennsluaðferðir miða að því að virkja nemendur, efla sköpunarkraft og auka sjálfstæði og ábyrgð nemenda á eigin námi.
    FÉLV1SJ06 og NÝNE1NÝ01
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • frumkvöðlum, nýsköpun, vöruþróun og framleiðslu
    • stjórnun og stefnumótun fyritækja
    • markaðssetningu vöru og viðfangsefni markaðsfræðinnar
    • áætlanagerð, fjárhagsáætlunum og fjármögnun fyrirtækja
    • útgáfu hlutabréfa, bókhaldi, stjórnarfundum, fundargerðum
    • framleiðsluferli vöru
    • verkaskiptingu og reglum í starfsmannaráðningum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna að vöruþróun í hópvinnu
    • búa til kynningarefni fyrir vöru og þjónustu
    • gera áætlanir og átta sig á hvort raunhæft sé að framleiða tiltekna vöru
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna að skapandi verkefnum og reka lítið fyrirtæki
    • koma hugmyndum sínum á framfæri á árangursríkan hátt
    • koma auga á viðskiptatækifæri
    • meta markaðsaðstæður og nýta sölutækni við markaðssetningu
    • afla sér frekari þekkingar og upplýsinga sem nýtast við skapandi störf.