Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487067069.56

    Rafmagnsfræði 5
    RAMV3RR05
    1
    Rafmagnsfræði
    rafvélar, spennar, þriggja fasa riðstraumur
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    AV
    Í þessum áfanga er fjallað um framleiðslu á þrífasa spennu. Sýnt er hvernig sínuslaga spenna myndast í þrífasa rafölum og vektormyndir þeirra. Farið er yfir myndun hverfisegulsviðs og áhrif þess í rafvélum. Fjallað er um tengingar á þrífasa spennum og vélum og gerðar tengimyndir af þeim. Gerð er grein fyrir helstu þrífasa mælitækjum og tengingu þeirra og fjallað um áhrif bilana á rekstur þrífasa kerfa. Leyst eru einföld verkefni er varða rekstur þrífasa spenna, tækja og véla. Þá er farið í þrífasa rafmótora, rafala, spenna, rafvélar, og tæki.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • myndun þrífasa hverfisegulsviðs
    • tengingum þrífasa spenna, tækja og véla
    • töpum í þrífasa búnaði
    • fasviki í þrífasa búnaði og leiðréttingu á því
    • virknimyndum þrífasa búnaðar
    • vektormyndum þrífasa búnaðar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • teikna tengimyndir þrífasa spenna, tækja og vél
    • teikna vektoramyndir þrífasa búnaðar
    • reikna strauma, spennur, afl og fasvik í þrífasa búnaði
    • reikna stærð á búnaði til að leiðrétta fasvik í þrífasa kerfum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa leiðbeiningar og merkiskilti ýmisskonar þrífasa búnaðar
    • tengja þrífasa búnað við veitukerfi eftir upplýsingum á merkiskilti viðkomandi tækis
    • leiðbeina um val á búnaði og lögnum í viðkomandi veitukerfi
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.