Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487168041.67

    Rafsmiðja
    NÝSK3RA04
    3
    nýsköpun
    rafsmiðja
    Samþykkt af skóla
    3
    4
    Í áfanganum er fjallað um rafmagn og rafmagnsöryggi. Nemendur þekki almennar varnarráðstafanir í umgengni við rafmagn og varnir gegn of hárri snertispennu. Kynning á helstu verkfærum sem notuð eru í rafiðnaði. Fjallað um framleiðslu og dreifingu á raforku. Farið yfir notkun leiðara og algengustu ljósgjafa og rofa. Nemandinn fær að framkvæma afeinangrun og ganga frá endabúnaði, einnig að tengja klær og setja saman fjöltengi. Kennsla í notkun lóðbolta og lóðæfingar. Kynning á íhlutum sem notaðir eru í rafrásir. Farið yfir hönnun rafrása og yfirfærsla á prentplötu. Smíðuð verður einföld rafrás eða sett saman lítið rafeindatæki. Farið yfir lestur teikninga. Kennd notkun mælitækja sem notuð eru í rafiðnaði.
    Fab Lab Smiðja 1. þrep
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Almennum varnarráðstöfunum í umgengni við rafmagn
    • Vörnum gegn of hárri snertispennu
    • Helstu verkfærum sem notuð eru í rafiðnaði
    • Framleiðslu og dreifingu á raforku
    • Teikningalestri
    • Hönnun rafrása og þeim íhlutum sem notaðir eru
    • Aðferðum sem hafa að markmiði að bæta nýtingu hráefna, sem og förgun sorps
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Greina á milli leiðara og notkun þeirra
    • Meðhöndla algengustu ljósgjafa og rofa
    • Afeinangra og ganga frá endabúnaði
    • Tengja saman klær og setja saman fjöltengi
    • Nota lóðbolta og smíða einfaldar rafrásir eða setja saman lítið rafeindatæki
    • Velja viðeigandi verkfæri og tækjabúnað með tilliti til framkvæmdarinnar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Greina orsakir galla sem fram koma í framkvæmd og mæla fyrir um aðgerðir til endurbóta
    • Geta greint hvort tilskyldum reglum sé fylgt eftir varðandi öryggismál
    Skrifleg skýrsla um hvert verkefni og verkefnaskil. Einnig verður tekið til mats: • Frumkvæði • Vinnusemi • Frágangur, umgangur um vélar og verkstæði sem og tillitsemi við kennara og aðra nemendur • Vandvirkni og handbragð nemandans við vinnu sína