Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487234647.5

    Starfsþjálfun sjúkraliðanema
    STAF3ÞJ09(AV)
    3
    Starfsþjálfun sjúkraliðanema
    þjálfun á vinnsustað
    Samþykkt af skóla
    3
    9
    AV
    Í áfanganum vinnur nemandinn undir handleiðslu sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnun. Nemandinn öðlast hæfni og sjálfstæði í störfum sjúkraliða og við lok námsins skal nemandinn búa yfir almennri og sérhæfðri þekkingu, leikni og hæfni til þess að vinna hjúkrunar- og umönnunarstörf á faglegan hátt. Heimilt er að skipta starfsþjálfun niður í tvö til þrjú tímabil, en þjálfunin skal þó vera samfelld á hverju tímabili og lágmarksvinnuhlutfall ekki fara undir 60%. Nemandinn skal áður en hann fer í starfsþjálfun fá samþykki skóla fyrir námsstaðnum og skrifa undir námssamning ásamt fulltrúa skóla og ábyrgðaraðila á námsstað. Að loknu námi í VINN2LS08 er nemandanum heimilt að ljúka fimm vikum af starfsþjálfuninni, miðað við 40 stunda vinnuviku. Nemandinn skal alfarið fylgja þeim reglum sem viðkomandi heilbrigðisstofnun setur sínu starfsfólki.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • faglegum grunni hjúkrunarstarfa
    • mikilvægi samskipta og samvinnu í störfum sjúkraliða
    • vinnuumhverfi og starfssviði sjúkraliða
    • siðareglum sjúkraliða
    • lögum og reglugerðum sem tengjast störfum sjúkraliða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita faglegum vinnubrögðum í sjúkraliðastarfinu
    • taka þátt í þverfaglegu samstarfi
    • starfa eftir siðareglum, sýna siðferðisvitund, fordómaleysi, umburðarlyndi og víðsýni í störfum sínum
    • vinna eftir gæðaviðmiðum heilbrigðisstofnana
    • beita hjúkrunarmeðferðum samkvæmt hjúkrunaráætlun hverju sinni
    • beita innsæi, gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn hjúkrunarviðfangsefna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • yfirfæra og samþætta fræðilega þekkingu að sjúkraliðastarfinu
    • vinna sjálfstætt og bregðast við margvíslegum aðstæðum í sjúkraliðastarfinu
    • rökstyðja og ígrunda þær hjúkrunarmeðferðir sem hann framkvæmir samkvæmt hjúkrunaráætlun hverju sinni
    • sýna hæfni í samskiptum við ólíka einstaklinga með ólíkar þarfir
    • tileinka sér nýjungar og þróa sig í starfi
    • nýta samskiptahæfni við margvíslegar aðstæður
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.