Farið yfir hvernig meta skuli ástand eftirfarandi: þéttleika strokka hreyfilsins, m.a. með þjöppumælingu, hreyfibúnað ventla, þ.e. vippur, kambás og kambásdrif, strokklok og blokk (þéttifleti og skrúfganga), ventla, ventilgorma og tilheyrandi. Kynnt er notkun hlustunartækja við greiningu bilana og gerðar verklegar æfingar á lausum strokklokum og íhlutum. Strokklok er tekið af hreyfli, ástand þess metið, framkvæmd viðeigandi viðgerð og strokklokið sett aftur á hreyfilinn. Fjallað er um nauðsyn hreinlætis við vélaviðgerðir. Áhersla er lögð á mælingar á ástandi íhluta, sjónskoðun, eðli og ástandi skrúffestinga.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu gerðum skrúfukerfa: gengjur, lykilgrip, teygjuboltar
mæliatriðum sem varða ventlabúnað hreyfla og strokkloks
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þjöppumæla strokka
endurnýja (renna) ventla og ventilsæti
taka af/setja á strokklok hreyfils
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta ástand strokka hreyfilsins, hreyfibúnað ventlanna, þ.e. vippur, kambása og kambásdrif, strokklok og blokk (þéttifleti og skrúfganga), ventla, ventilgorma og tilheyrandi
Verklegt mat; nemandinn lýsir prófunum og mati á íhlutum og vélrænum kerfum brunahreyfla. Hann lýsir sérstaklega vinnu við endurnýjun ventlabúnaðar og tímun kambása. Skriflegt mat; nemandinn leysir próf um vélfræðilega þættii áfangans.