Framhaldsáfangi í vélbúnaði, stýri- og netkerfum. Megináhersla á netstýrikerfi og þjónustur. Nemendur kynnast grunnbyggingu netkerfa og netstýrikerfa. Farið er í uppbyggingu OSI módelsins og TCP/IP staðalsins. Aðgangsstjórnun notenda og fyrirbyggjandi viðhald. Grunnnetþjónustur er settar upp og stilltar. Nemendur taka út netkerfi hjá völdu fyrirtæki og gera skýrslu um það
TÖTÆ2FR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
netkerfum
netstýrikerfum og aðgangsstjórnun
netuppsetningum
uppbyggingu OSI módelsins
á TCP/IP staðlinum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina á milli mismunandi tegunda netuppsetninga
setja upp nettengingu
greint netkerfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja upp og tengja netkerfi
bilanagreint lítil netkerfi
stillt aðgang netnotenda
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá FS.