Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1488186460.37

    Hönnun í atvinnulífinu
    HÖNN2HA05
    13
    hönnun
    hönnun, í atvinnulífinu
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur kynnist fjölbreytileika hönnunar og markaðslögmálum greinarinnar í atvinnulífinu. Nemendur kynnist einnig tengslum greinarinnar við atvinnulífið í formi nýsköpunar, vöruþróunar, menningar, lista og stílsögu. Fjallað verður um ýmsa grunnþætti varðandi hráefnis- og vöruþekkingu og lög og reglugerðir. Mikilvægt er að nemendur átti sig á hlutverki þekkingar í hönnun og nýsköpun. Nemendur verði ljós gagnsemi hönnunar ásamt fjölbreyttum starfsvettvangi í samfélaginu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hlutverki hönnunar- og markaðsgreina í tengslum við atvinnulíf, þróun og nýsköpun
    • fyrirtækjum, menntunarmöguleikum, stofnunum, lögum og reglugerðum, réttindum og skyldum sem heyra undir hönnunar- og markaðsgreinar
    • framleiðslu- og markaðsferli á vöru eða þjónustu
    • hvernig hugmynd er breytt í söluvöru og hvernig framleiðsla og sala tengist kröfum og réttindum neytenda
    • hönnunarlögum, hönnunarvernd og einkaleyfum
    • tengslum greinarinnar við menningu og listir
    • starfs- og markaðsfærni greinarinnar í formi nýsköpunar, vöruþróunar og markaðssetningar
    • gagnsemi hönnunar í umhverfi okkar og samtímanum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina þarfir, tækifæri og möguleika við hönnun og framleiðslu á hlut
    • tengja námið við framhaldsnám eða þátttöku í atvinnulífi
    • nýta þekkingu og reynslu úr atvinnulífinu og bera saman við eigin reynsluheim
    • greina hvað hefur áhrif á neysluvenjur, breyttar þarfir, tækniframfarir og nýjungar
    • greina sambandið milli hugmyndar, hráefnis, tækni, aðferða og niðurstaðna
    • skynja hvernig hönnun, framleiðsla og markaðssetning helst í hendur
    • greina það ferli sem fyrirtæki þurfa að fara í gegn um til þess að koma vöru/þjónustu í sölu
    • greina hvernig verki er skipt upp í verkþætti, verkaskiptingu, framleiðsluferli og gerð áætlana
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hafa innsýn í skipulagningu og viðburði á sviði hönnunar
    • geta borið saman og gagnrýnt hönnun í samtímanum
    • skrá ferli, meta og rökstyðja vinnu sína
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.