Í áfanganum verður fjallað um lykilþætti íþróttasálfræðinnar, áhugahvöt, spennustig, endurgjöf, samskipti, sjálfstraust, ofþjálfun og hugarþjálfun. Einnig verður farið í næringarfræði með sérstakri áherslu á íþróttir og heilsurækt. Ráðleggingar um næringu fyrir mismunandi íþróttagreinar og næringu fyrir, eftir og við átök. Sérþarfir kvenna ííþróttum og sérþarfir ungra íþróttamanna varðandi næringu verður líka skoðuð. Líka verður fjallað um vatn og vökvaþörf og gagnsemi íþróttadrykkja.
Hafa lokið áfanganum LÍFF2NÆ05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig kvíði, spennustig og sjálfstraust hefur áhrif á frammistöðuna í íþróttum
hvernig bregðast skal við ofþjálfun og kulnunar við íþróttaiðkun
hvernig áhugahvöt getur haft áhrif á hegðun fólks innan íþrótta
næringu íþróttafólks við sérstækar aðstæður s.s byggja upp kolvetnislager, skera sig niður og byggja upp vöðva
næringu fólks við sérstækar aðstæður, s.s fólk sem þarf að léttast eða þyngjast
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna að helstu aðferðunum sem beitt er við hugræna þjálfun s.s spennustjórnun, skynmyndanotkun og athyglisstjórnun
geta kennt hvernig íþróttaiðkun og almenn líkamsrækt getur haft áhrif á líðan fólks
skipuleggja fæði fólks við mismunandi og sérsækar aðstæður
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta greint hagnýt, flókin viðfangsefni í faglegu samhengi sem geta komið upp í fjölbreyttu starfi við þjálfun
taka þátt í umræðum um viðfangsefnin
taka upplýsta ákvörðun um hvað sé rétt og hvað rangt tengt viðfangsefnunum í næringunni