Í þessum áfanga er fjallað um grunnvirkni og notkun rofa og segulliða, rofa- og snertitækni kynnt. Fjallað er um virkni og notkun segulliða í stýrirásum og kraftrásum og tímaliða í stýrirásum. Farið er í undirstöðuatriði við gerð á einlínu- og fjöllínumyndum svo og tákn og staðla sem notaðir eru við gerð teikninga fyrir segulliðastýringar. Nemandinn fær þjálfun í að tengja, prófa og mæla og taka saman niðurstöður. Einnig er lögð áhersla á að nemandinn nýti sér mælitæki til að finna tengivillur og bilanir.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einfaldri gerð rofa og segulliða
virkni og uppbyggingu segulliða
virkni og gerð tímaliða
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa einfaldar einlínu- og fjöllínuteikningar
hanna minni og einfaldar rofa- og segulliðastýringar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja einfaldar stýrirásir
nýta mælitæki fyrir einfaldar stýrirásir
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.