lagnir fyrir fjarskiptakerfi, tölvukerfi, öryggiskerfi
Samþykkt af skóla
2
3
AV
Í þessum áfanga er lögð áhersla á tengingar og efnisval á meðalstórum boðskiptakerfum s.s. tölvukerfi, símalagnir, dyrasímakerfi, loftnetskerfi og ljósleiðara. Einnig verða tengd öryggis- og brunakerfi. Gerðar verða mælingar og farið í bilanaleit í þessum kerfum og hvernig gert er við bilanir. Áfanginn er verklegur og kenndur samhliða VSME2LÖ05
RALV2TM03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
lagningu bruna- og boðskiptalagna
kröfum um frágang á köplum í rennum, bökkum og stigum
uppröðun í tengiskápa
mismunandi gerðum kapla eftir aðstæðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tengja stjórnstöðvar brunakerfa
leggja og tengja tölvu, síma, hljóð, mynd og loftnetslagnir á fagmannlegan hátt
setja upp og tengja mismunandi brunakerfi
finna út bilanir og gera við þær
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja boðskiptalagnir við krosstengibretti (patcpanil) og annan endabúnað
tengja loftnetskerfi og gera mælingarskýrslu
tengja dyrasímakerfi og mæla út bilanir
tengja boðskiptalagnir og krosstengibretti
gera mælingarskýrslu og útlitsmynd af skáp
velja búnað í ljósleiðarakerfi og umgangast búnaðinn af þekkingu
ganga frá lögnum að brunakerfum og viðvörunarkerfum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.