Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1488650795.55

    Tæknilýsingar framleiðanda
    BMTF4TF02
    2
    Tæknilýsingar framleiðanda
    tæknilýsingar framleiðanda
    Samþykkt af skóla
    4
    2
    AV
    Farið yfir alla miðla tæknilýsinga og upplýsinga sem tíðkast í starfsgreininni; prentuð gögn og rafræn gögn. Sérstaklega þau atriði sem framleiðandi leggur áherslu á til viðgerðar á ökutækjum. Farið yfir OEM reglur framleiðenda með tilliti til aðferða við viðgerðir og frágang. Farið yfir efnisfræðilega notkun til að uppfylla kröfur framleiðanda. Nemandi þjálfast í að finna upplýsingar sem þarf vegna viðgerða með tilvísun í OEM staðla framleiðanda.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • rafrænum upplýsingum sem spanna: viðgerðaaðferðir, viðgerðamyndir, verð á varahlutum, vinnutíma, vinnuöryggi, bilanaleitartöflur og bilanakóðatöflur
    • prentuðum upplýsingagögnum; viðgerðabækur framleiðenda, sérhæfðar viðgerðabækur, almennar viðgerðabækur, handbók bílsins, bók um viðgerðatíma, tæknilegar tilkynningar
    • helstu gerðum greiningatafla: tafla með greinum, tafla með kössum, myndatafla, tafla með staðsetningum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • finna tæknilegar upplýsingar um viðhald og viðgerðar á ökutækjum
    • miðla þekkingu á reglum og fyrirmælum framleiðanda um notkun, hirðu og meðferð ökutækja til hagsmunaaðila
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • finna viðeigandi upplýsingar vegna viðgerða með tilvísun í OEM staðla framleiðanda
    • túlka og skýra tæknilegar upplýsingar vegna viðgerða eða til leiðbeina eða ráðleggja viðgeðamönnum eða ökumönnum
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.