Markmið áfangans er að auka þekkingu nemandans á nýorkubifreiðum. Lögð er áhersla á tæknilega uppbyggingu ýmissa kerfa í nýorkubifreiðum, metan, raf- vetnis- og blendingsbifreiðum. Borin saman vinnslusvið og geta hverrar einingar um sig til að draga úr koltvísýrings losun út í umhverfið í akstri og uppbyggingu eininga. Að nemandinn þekki þau öryggisatriði sem snúa að viðhaldi slíks búnaðs, hættur og fyrirbyggjandi viðhald. Lögð er áhersla á tæknilega þekkingu og verklega hæfni til að sinna ökutækjum með slíkan búnað.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hættum við vinnu rafbifreiða
ýmsum gerðum rafhreyfla
reglum framleiðanda um meðferð rafbúnaðar með háspennu
vinnureglu brunahreyfla
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta ástand búnaðar
skipta um hluti í búnaði eftir þörfum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lýsa uppbyggingu og virkni metanbifreiða
lýsa uppbyggingu og virkni vetnisbifreiða
lýsa uppbyggingu og virkni rafbifreiða
lýsa uppbyggingu og virkni fjölorkubifreiða
miðla þekkingu sinni á nýorkubifreiðum til annarra
lýsa hættum sem geta skapast við vinnu nýorkubifreiða
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.