Farið yfir öryggisbúnað, m.a. loftpúða og beltastrekkjara, einnig er farið yfir annan þann búnað sem er skilgreindur sem SRS. Áhersla er lögð á hættur af umgengni við öryggis- og verndarbúnað með sprengihleðslu, s.s. púða í stýri, mælaborði, hnjápúða og í hliðum farþegarýmis og öryggisbeltum við þjónustu og björgunarstörf. Farið yfir aðferðir við viðgerðir og frágang raflagna SRS búnaðar. Farið yfir ýmsan rafeindabúnað í ökutækjum með áherslu á algeng hreyfilstjórnkerfi og önnur stjórnkerfi. Farið yfir gerð sannindatöflu og umreikning milli talnakerfa. Leit að upplýsingum um viðfangsefni áfangans og lestur viðgerðarbóka. Farið yfir notkun og meðferð mæli- og prófunartækja s.s. sveiflusjá og bilanagreina. Gerðar tilraunir og æfingar með rökrásarbúnað. Skoðun, prófun og greining á ástandi stýrikerfa.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
kröfum um öryggisbúnað í reglugerð um gerð og búnað ökutækja
hættum sem stafa af rangri umgengni um öryggisbúnað
kröfum um persónuhlífar við vinnu
ýmsum rafeindabúnaði í ökutækjum sem stjórnar vinnu hreyfla, gírkassa, fjöðrunar, öryggisbúnaðar, mælabúnaðar, þægindabúnaðar o.fl.
virkni samskiptabúnaðar í tölvukerfum bifreiða
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skoða og prófa öryggisbúnað
gera við öryggisbúnað innan þeirra marka sem framleiðendur ætla almennum viðgerðamönnum
umbreyta tugatölum í tvítölur
nota mæli- og prófunartæki fyrir rafbúnað stýrikerfa
leiðbeina umráðamanni ökutækis varðandi umgengni við rafeindastýrð stjórn- og eftirlitskerfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lýsa virkni SRS kerfis
þjónusta SRS kerfi
skipta um einingar kerfa eftir reglum framleiðenda
leiðbeina um umgengni og vinnu við SRS búnað
lýsa sannindatöflum rökrása
umreikna á milli talnakerfa
leita upplýsinga um hvernig staðið skuli að bilanaleit
lýsa prófun og greiningu á ástandi hreyfla með rafeindastýrð stjórn- og eftirlitskerfi
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.