Í áfanganum er fjallað um stærri samsettar iðntölvur, eiginleika þeirra og tengingar við skjámyndakerfi. Nemendur fá kennslu og þjálfun í forritun iðntölva með ladder og virkniblokkum (FBD) og notkun ýmissa hjálpartækja við slíka forritun, svo sem PC-tölva og flæðimynda. Nemendur kynnast reglun og stillingum regla (P, PI og PID) og notkun skynjara (hliðrænna og stafrænna), og aðgerðarskjáa. Þá fá nemendur æfingu í að tengja ytri búnað við iðntölvu.
RÖKV3HS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
öllum helstu skipunum stafrænnar - og hliðænnar virkni
möguleikum í samtengingu iðntölva með gagnabrautum
aðgerðaskjám og notkun þeirra
skynjurum, reglum og reikniaðgerðum
tengingum við tíðnibreyta
tengingum við mjúkræsa
skjalagerð er varðar iðntölvustýringar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
forrita iðntölvur í ladder og virkniblokkum
forrita minni skjámyndakerfi
tengja iðntölvur við ytri búnað s.s. skynjara og skjái
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hanna stýringar
vinna með hliðræn og stafræn merki
hanna og vinna með skjámyndir
tengja saman iðntölvur og skjámyndakerfi
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.