Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í handbolta og blaki. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
leikreglum í handbolta og blaki
hvernig á að leiðbeina börnum í handbolta og blaki
kennslu tækniæfinga í handbolta og blaki
skipulagningu handboltaþjálfunar og blakþjálfunar
fjölbreyttum leik- og tækniæfingum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leiðbeina byrjendum í handbolta og blaki
nota handbolta og blak sem skólaíþrótt
spila handbolta og blak
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja íþróttatíma í handbolta og blaki
stjórna hópi af börnum
átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hóp
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.