Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490021191.9

    Ýmsar íþróttagreinar
    ÍÞRG3OP03(AV)
    13
    íþróttagrein
    opinn íþróttagreinaáfangi
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    AV
    Í þessum áfanga er stefnt að því að nemendur fái trausta þekkingu á einni eða fleiri íþróttagreinum og þeir búnir undir þjálfunar- og leiðbeinendastörf í viðkomandi grein(um). Efnið er breytilegt eftir önnum eftir aðstæðum hverju sinni. Dæmi um viðfangsefni: Karfa, badminton, borðtennis, júdó, karate, glíma, golf, jóga, sund, fimleikar og íþróttir fatlaðra.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • allri grunntækni í íþróttagreininni
    • mismun á þjálfun barna og fullorðinna
    • leikreglum og/eða helstu æfingum greinarinnar
    • undirbúningi og skipulagi sem þarf til að iðka íþróttina
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • undirbúa æfingar fyrir börn og fullorðna í greininni
    • helstu tækniatriðum greinarinnar
    • kennslufræði greinarinnar
    • dómgæslu greinarinnar ef við á
    • leikfræði og eða tækni greinarinnar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • undirbúning þjálfunar greinarinnar
    • gerð tímaseðla
    • dæma leiki hjá yngstu iðkendum ef við á
    • nýta sér upplýsingatækni við skipulag æfinga og þjálfun
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.