Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490106938.48

    Ferðamálafræði II
    FERÐ3FÚ05(CA)
    2
    ferðamálafræði
    Ferðalandafræði útlanda
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    CA
    Í áfanganum eru helstu áfangastaðir í ferðaþjónustu um allan heim kynntir. Þá er sérstaklega fjallað um hinn íslenska ferðamann og hverju hann sækist eftir á ferðalögum erlendis. Farið er yfir það sem gerir áfangastaði áhugaverða í augum ferðamanna og skoðað hvað gerir hvern stað að aðdráttarafli í ferðaþjónustu. Lögð er áhersla á leikni í notkun ferðahandbóka og alþjóðlegra landakorta auk þess að nemendur hljóta aukna þekkingu á helstu upplýsingamiðlum um áfangastaði fyrir ferðamenn um heim allan.
    FERÐ2FÍ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ferli skipulagningar og undirbúnings ferða út í heim
    • fjölbreytileika ferðamanna og ólíkra þarfa þeirra í ferðaskipulagningu með tilliti til markhóps
    • neti samgangna um heiminn og möguleika til ferðalaga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skipuleggja ferðir víða um heim
    • nýta handbækur, bæklinga, heimasíður og aðra miðla til upplýsingaöflunar
    • nota bókunarkerfi við skipulagningu ferða
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leita upplýsinga um helstu ferðamannastaði í heiminum
    • nota alþjóðleg landakort, handbækur og áreiðanlegar heimildir á netinu til að afla upplýsinga um einstaka staði/lönd
    • skipuleggja ferðir fyrir ákveðna hópa eða einstaklinga þar sem tekið er tillit til einkenni ferðamannastaða, framboðs afþreyingar, þjónustu, vegalengda og ferðamöguleika
    Samanstendur af fjölbreyttum verkefnum yfir önnina.