Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490363149.09

    Vinnustaðanám - Umhirða og velferð 1
    HEST2VN04
    8
    hestamennska
    Vinnustaðanám
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    Nemendur vinna með þrjú hross og eru þau tekin út af fulltrúa Framhaldsskólans í Mosfellsbæ og vinnustaðarkennara í upphafi annar og lok tímabils. Á tímabilinu hafa nemendur umsjón með öllu því sem viðkemur hrossunum fyrir utan þjálfunina. Nemendur þurfa að ræða við vinnustaðarkennara um þjálfun hrossanna svo hann viti hvort álag þjálfunarinnar hafi áhrif á fóðrun og fleira. Nemendur bera ábyrgð á því að fylgja hrossunum í öllu því sem þeim viðkemur. Nemendur ráðfæra sig á viku fresti við vinnustaðarkennara um þjálfunaráætlun hestsins. Hér þarf að velta upp spurningum eins og: Hverju er verið að vinna í? Er álagið í þjálfuninni að minnka eða aukast? o.s.frv. Út frá þessum þáttum eru fóðurþarfir ákveðnar í samráði við vinnustaðarkennarann.
    HEST2FB05 og HEST2FV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnþörfum íslenska hestsins í fóðrun og umhirðu
    • eðli og atferli hestsins og hvernig knapinn á að umgangast hann
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tjá sig í umræðum um hesta á faglegum grundvelli
    • vinna sjálfstætt
    • flokka hesta í rétt holdastig og reikna fóðurþarfir þeirra
    • útbúa fóðurplan samkvæmt holdfari hesta
    • taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi eigið verklag í umgengni við hesta
    • greina líkamlega hegðum og skapgerð mismunandi hesta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • miðla þekkingu sinni og reynslu til annarra
    • sinna öryggismálum í sambandi við hesthús og umgengni við hesta
    • bera ábyrgð á daglegri umhirðu hesthúss og fylgja reglum varðandi hestahald
    • vera sjálfstæður í vinnubrögðum í umgengni við hesta og bera ábyrgð á fóðrun og umhirðu þeirra
    Nemendur gera vikulega skýrslu (200-400 orð) um hvert hross þar sem upplýsingar um fóðrun, þjálfun, heilbrigði og umhirða hrossins eiga að koma fram. Á tveggja vikna fresti eru skil á skýrslum til fulltrúa Framhaldsskólans í Mosfellsbæ. Innan við viku eftir skil á fulltrúi FMOS að skila athugasemdum til nemenda. Við seinni úttekt á hrossunum afhenda nemendur útprentaða lokaskýrslu til fulltrúa FMOS. Leiðsagnarnám, ekkert skriflegt lokapróf.