Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490562750.69

    Vinnustaðanám - Vinna við hendi
    HEST2VN08
    4
    hestamennska
    Vinnustaðanám
    Samþykkt af skóla
    2
    8
    Nemendur vinna með þrjú hross og eru þau tekin út af fulltrúa Framhaldsskólans í Mosfellsbæ og vinnustaðakennara í upphafi annar og lok tímabils. Á tímabilinu þurfa nemendur að vinna markvisst með öll hrossin og kenna þeim æfingar við hendi og í hringteymingu. Vinna nemenda með hrossin þarf að vera hluti af þjálfunaráætlun þeirra. Nemendur eiga að fá að vinna með hrossin að lágmarki þrisvar sinnum í viku. Val á hrossum er unnið í samráði við vinnustaðarkennara ásamt vinnslu þjálfunaráætlunar. Gert er ráð fyrir að nemendur fari í gegnum allar æfingarnar með öll hrossin sem þeir fá úthlutað. Eðlilegt er að á miðju tímabili ráðfæri nemendur sig við vinnustaðarkennara um hvaða hross skal notað fyrir hvaða verkefni. Nemendur og vinnustaðarkennarar ákveða í sameiningu hvernig prófið fer fram, þ.e. röð atriða, hvar það er sýnt o.þ.h og skulu æfingarnar vera framkvæmdar eins og kennt var og sýnt í prófum við skólann.
    HEST2FB05 og HEST2FV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ábendingarkerfi knapa við hendi
    • aðferðum til að bæta eigið jafnvægi hestsins við hendi
    • náttúrulegu eðli og atferli hestsins og hvernig hestinum er kennt út frá því við hendi
    • einföldum fimiæfingum sem unnar eru við hendi og í hringteymingu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa í viðbrögð hests hvort hann er heilbrigður eða þarfnast aðhlynningar
    • taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi eigið verklag í umgengni hesta
    • taka sjálfstæðar ákvarðanir í vali á þjálfunarbúnaði
    • gera einfaldar grunnæfingar sem unnar eru við hendi og í hringteymingu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • miðla þekkingu sinni og reynslu til annarra
    • vinna út frá forsendum hestsins með hestvænar aðferðir að leiðarljósi
    Nemendur halda dagbók um hvert hross þar sem upplýsingar eiga að koma fram um alla þá vinnu sem unnið er með hestana. Dagbókin á einnig að innihalda gagnrýna umfjöllun um hvað tókst vel og hvað mætti betur fara. Skila á dagbókinni á tveggja vikna fresti til fulltrúa Framhaldsskólans í Mosfellsbæ. Innan við viku eftir skil á fulltrúi FMOS að skila athugasemdum til nemenda. Við seinni úttekt á hrossunum skulu nemendur afhenda útprentaða lokaskýrslu til fulltrúa FMOS.