Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490563194.54

    Vinnustaðanám - Umhirða og velferð 2
    HEST2VN02
    5
    hestamennska
    Vinnustaðanám
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Nemendur vinna með tvö hross á þessu öðru tímabili vinnustaðanáms. Hrossin eru tekin út í upphafi tímabils af fulltrúa Framhaldsskólans í Mosfellsbæ og vinnustaðarkennara. Á tímabilinu hafa nemendur umsjón með öllu því sem viðkemur umhirðu hrossanna. Nemendur ráðfæra sig á viku fresti við vinnustaðarkennara um þjálfunaráætlun hestanna og velta upp spurningum varðandi framhaldið.
    HEST2FB, HEST2FV05, HEST2VN04 og HEST2VN08
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnþörfum íslenska hestsins í fóðrun og umhirðu
    • eðli og atferli hestsins og hvernig knapinn á að umgangast hann
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tjá sig í umræðum um hesta á faglegum grundvelli
    • lesa í viðbrögð hests hvort hann er heilbrigður eða þarnast aðhlynningar
    • vinna sjálfstætt
    • flokka hesta í rétt holdastig og reikna fóðurþarfir þeirra
    • greina líkamlega hegðun og skapgerð mismunandi hesta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • miðla þekkingu sinni og reynslu til annarra
    • sinna öryggismálum í sambandi við hesthús og umgengni við hesta
    Nemendur gera vikulega skýrslu (200-400 orð) um hvert hross þar sem upplýsingar um fóðrun, þjálfun, heilbrigði og umhirðu þurfa að koma fram. Á tveggja vikna fresti þarf að skila skýrslum til fulltrúa FMOS. Innan við viku eftir skil á fulltrúi FMOS að skila athugasemdum til nemenda. Í lok tímabilsins skulu nemendur afhenda útprentaða lokaskýrslu til fulltrúa skólans.