Í áfanganum læra nemendur að kenna börnum undirstöðuatriði í frjálsum íþróttum og knattspyrnu. Lögð er áhersla á kennslu grunnfærni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greinunum. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að æfingar séu greindar í stuttar einingar, leikæfingar. Nemendur þjálfast í kennslu viðkomandi íþróttagreina og framkvæmd æfinga. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
kennslu í grunntækni íþróttana
skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
leikreglum
helstu þjálfunaraðferðum
fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í þessum íþróttagreinum og mikilvægi þeirra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leiðbeina börnum á mismundandi aldri í viðkomandi íþrótt
beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
stunda frjálsar íþróttir og knattspyrnu
sýna og framkvæma ýmsar æfingar sem tengjast íþróttunum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
þjálfa ýmsa aldurshópa í frjálsum íþróttum og knattspyrnu
búa til tímaseðla, vikuáætlun og mánaðaráætlun með ákveðinn aldur í huga
kenna börnum rétta tækni
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.