Hársnyrtir klippir, litar, setur permanent í hár og blæs og útfærir hár beggja kynja – allt óháð hárlengd, hárgerð og höfuðlagi. Hann velur vörur og áhöld og útfærir þjónustu á faglegum forsendum en miðar einnig við þarfir og óskir viðskiptavina. Hann vinnur sjálfstætt en getur átt samvinnu við aðrar faggreinar um skipulag og samþættingu verkefna er varða hár og tísku.
Hársnyrtir fer að lögum og reglum í starfi sínu og hefur tileinkað sér þjónustulund og
fagvitund byggða á siðferðilegum grunni. Hann er virkur í faglegu starfi og hefur hæfni til að kynna sig og verk sín. Hann getur rekið eigin starfsemi með jákvæðum árangri. Hársnyrtir veit um annmarka starfsins og neikvæð áhrif þeirra á framtíðarmöguleika í faginu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
margs konar klippiformum fyrir dömur og herra
lögum og reglugerðum um hreinlæti, umhverfisvernd, öryggi, vinnuvernd og forvarnir, réttindi og skyldur
sögu hársnyrtingar og síbreytilegrar tísku í aldanna rás
umhverfisvænum vörum og leiðum til að öðlast viðurkenningu sem umhverfisvænn hársnyrtir
siðferðilegum málefnum sem hafa áhrif á hár-og tískuiðnaðinn og siðareglum innan þess iðnaðs
mismunandi andlitsföllum, líkamsbyggingu og persónuleikum viðskiptavinar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þvo hár og nudda höfuð með hárnæringu
forma og raka skegg
vinna með faglegt orðfæri á íslensku og ensku
útbúa einfalda fjárhags- og markaðssetningaráætlun fyrir rekstur hársnyrtistofu
beita fjölbreyttum aðferðum til að skapa og útfæra dag- og uppgreiðslur á öllum hárlengdum, hárgerðum og höfuðlagi beggja kynja
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
þróa litatækni og klippiform
velja vörur og meðferð út frá grunnþekkingu sinni á eiginleikum hárs, samspili efnahvarfa, efnafræðilegum áhrifum permanents og almennri meðhöndlun kemískra efna
útbúa verklýsingu í máli og myndum og vinna eftir verklýsingum annarra
veita persónulega ráðgjöf um meðferð hárs og notkun á hármótunarvörum og aukahlutum fyrir hár
greina hár- og hársvörð
vinna sjálfstætt
sýna viðskiptavinum, samstarfsfólki og umhverfi virðingu
vera virkur og gagnrýninn þáttakandi í faglegri umræðu
kynna sig og verk sín á víðtækan hátt
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum meistara í viðkomandi grein.