Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490820552.89

    Starfsþjálfun matartækna 1
    STAÞ1SM12
    6
    Starfsþjálfun
    starfsþjálfun matartækna
    Samþykkt af skóla
    1
    12
    Matartæknir matreiðir algengan heimilismat, hátíðarmat og sérfæði og setur saman matseðla með hliðsjón af þörfum einstakra hópa og sérþörfum einstaklinga. Hann starfar á heilbrigðisstofnunum og í mötuneytum og sinnir stjórnun í eldhúsum heilbrigðisstofnana. Hann ber ábyrgð á útkomu vinnu sinnar gagnvart viðskiptavinum. Matartæknir vinnur með hreinsiefni sem notuð eru í stóreldhúsum og mötuneytum við hreinsun m.a. tækja og áhalda og hefur eftirlit með slíkum þrifum í samræmi við gildandi staðla og reglur um hreinlæti. Hann starfar í samræmi við almennar siðareglur.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þörfum einstakra hópa, m.a barna, aldraðra og sjúklinga með ólíka sjúkdóma og þarfir fyrir sérfæði, einnig aðila sem fara óhefðbundar leiðir í fæðuvali
    • fæðuofnæmi og fæðuóþoli
    • siðareglum, s.s. um virðingu fyrir faginu, hráefni og nýtingu þess
    • öryggisreglum sem gilda um innra eftirlit í eldhúsum hvað varðar viðmiðunarmörk, s.s. um hitastigsmörk og hreinlæti og vinnureglum um rekjanleikja
    • vöru og þjónustu og afgreiðslu á vörum og þjónustu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • útfæra almennt fæði yfir í sérfæði fyrir hópa
    • reikna út hollustu- og næringargildi helstu framleiðsluvara og aðlaga matarskammta
    • neysluþörfum markhópa og einstaklinga
    • setja saman matseðla
    • dúka borð
    • útbúa rétti til framreiðslu
    • gera pöntunar- og verkefnalista
    • nota handverkfæri til skurða og meðferð á grænmeti, fisk og kjöti
    • þrífa og sótthreinsa húsnæði, tæki og áhöld
    • nota íðorð greinarinnar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • túlka innihaldslýsingar á matvælum og setja saman innihaldslýsingu á réttum með tilliti til ólíkra þarfa viðskiptavina
    • taka þátt í faglegum umræðum um matreiðslu á heilbrigðisstofnunum þar sem t.d. þarf að beita sérlausnum við samsetningu matseðla
    • sýna ábyrga afstöðu til sjálfbærni
    • leiðbeint um fagleg málefni á íslensku og erlendum tungumálum
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum meistara í viðkomandi grein.