Nám í þessum áfanga á að veita nemendum undirstöðuþekkingu í burðarþolsfræðum að því marki að þeir geti notað burðarþolsútreikninga til að ákvarða stærð og styrk ýmissa vélarhluta og lagt mat á efnisgerð út frá þeim.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
eiginleikum helstu málma við tog- eða þrýstiálag
grundvallaratriðum jafnvægisfræðinnar
fjöðrun í efnum og lögmál Hooks
togspennu, þrýstispennu og skurðarspennu
aðferðum við að reikna út spennur í bitum og vélahlutum
skurðkröftum og bognunarvægislínuriti fyrir burðarálag á öxla og bita
flatar- og viðnámsvægi öxla og bita
Euler-reiknireglunni og beitingu hennar við útreikninga á álag á súlur
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna út togspennur, þrýstispennur og skurðarspennur þversniðum
reikna út skurðkrafta og bognunarvægi fyrir öxla og bita
reikna út flatar- og viðnámsvægi fyrir ýmis þversnið
reikna út spennur í öxlum og bitum
reikna út styrk í súlum m.a. á grundvelli Euler-reiknireglunnar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
reikna burðarþol til að ákvarða stærð og styrk ýmissa öxla, bita og vélarhluta
velja málma og efnismagn sem standast kröfur um styrk og hámarka efnisnýtni
vinna sjálfstætt og leggja gagnrýnið mat á útreikninga
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.