fríhendisteikning, iðnteikning, teikningalestur, þjálfun í tölvuteikningu
Samþykkt af skóla
3
5
AV
Nemendur öðlast frekari færni í tölvuteikningu með áherslu á gerð fagteikninga samkvæmt gildandi stöðlum og reglum um véla- og málmsmíðateikningar. Öðlast þjálfun í fríhendisteikningu með áherslu á rissmyndir. Nemendur verða færir um að lesa og vinna eftir teikningum á vinnustað. Þeir geta teiknað og útfært smíða- og lagnateikningar fyrir einstök verkefni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu rissmynda
stöðlum sem gilda um teikningagerð
táknum og merkingum á teikningum, þ.e. hvaða upplýsingar þær hafa að geyma
mælikvörðum sem algengir eru í smíða- og lagnateikningum
strikagerðum og strikaþykktum á teikningum og merkingum þeirra
reglum um málsetningar teikninga og notkun teiknileturs
framsetningu sniða og varpana
skástrikunum
samsetningateikningum
merkingu vinnslumerkja, málvika, suðufúga og suðutákna
grundvallarreglum við gerð útflatningsteikninga
grundvallarreglum við gerð ísómetrískra teikninga og kerfismynda
gerð samsettra teikninga og íhlutalista þeirra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna rissmyndir til skýringa á hugmyndum
rissa upp einfaldar þrívíðar myndir af smíðahlutum
skýra með teikningum hugmyndir um útlit og tilgang einfaldra smíðahluta
staðsetja teikningu, ákvarða hæfilegan mælikvarða og aðra uppsetningu
setja inn nauðsynleg snið og málsetja teikningu svo hægt sé að smíða hlutinn
beita þeim vinnuaðferðum sem krafist er við gerð vélateikninga og þjálfaðar hafa verið í áfanganum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
teikna stöðluð form fyrir staðlaða íhluti samkvæmt upplýsingum framleiðenda (legur, pakkningar, tannhjól o.s.frv.)
teikna einstaka vélahluta og samsettar myndir samkvæmt fyrirmælum
teikna sjálfstætt hluti samkvæmt skriflegum leiðbeiningum, velja íhluti og málsetja
gera efnis- og tækjalista eftir teikningum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.