Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1491060081.68

    Kælitækni 2
    KÆLI3MR05
    1
    Kælitækni
    mismunandi búnaður til kælingar, reglugerðir varðandi kælitækni, umhverfismál
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    AV
    Nemandinn öðlast þekkingu á mismunandi búnaði til kælingar, s.s plötufrysta, lausfrysta, skelískerfi, varmadælukerfi, RSW-kerfi, þrepakælikerfi, lofttemprunarkerfi, kerfi með mörgum kælirýmum og pressum (t.d. frystigeymsla eða skip), gámakerfi, og kerfi sem þurfa að ná mjög lágu hitastigi. Fjallað um heitgasafhrímingu, hegðun lofts í kæligeymslum og í lofttemprunarkerfum (þornun og raka útfellingar), íhluti í kælikerfum og hlutverk þeirra. Um virkni og stillingu kæliþjappa, þensluloka, þurrkara, sjónglasa, olíuskilja, mótþrýstiloka, segulloka o.fl. Nemandinn kynnist pækilkerfum, kolsýrukerfum, ammoníakskerfum og nauðsynlegum öryggisþáttum sem einkenna rekstur kælikerfa. Fjallað er um helstu reglugerðir varðandi kælitækni og umhverfismál. Nemandinn skal öðlast færni og þekkingu til að vinna við lekaeftirlit, endurheimt efna, uppsetningu búnaðar, viðhald og þjónustu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu tegundum kælibúnaðar, s.s. plötufrystum, lausfrystum, skelískerfum, krapakerfum, varmadælukerfum, SRW-kerfum, þrepakerfum, fallkerfumfallkúta kerfum, kælipressum og gámakerfum
    • tilgangi og framkvæmd heitgasafhrímingar
    • stöðlum og reglum um kælimiðla og endurnýtingu þeirra
    • rakaútfellingum og lausnum vegna þeirra
    • íhlutum helstu tegunda kælikerfa
    • kolsýru sem kælimiðil og búnaði við slík kerfi
    • ammoníaki sem kælimiðil og búnaði við slík kerfi
    • öryggismálum er varða kælikerfi
    • notkun þjónustubóka
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • mæla og stilla yfirhitun kælikerfis á þenslulokum
    • mæla undirkælingu
    • kanna þéttleika kerfisins með þrýstiprófun
    • fylla kerfið af kælimiðli (vökva eða gufu) án þess að neitt af kælimiðlinum tapist
    • tengja og aftengja mæla og leiðslur þannig að losun verði sem minnst
    • annast eftirlit með leka í kerfinu með því að nota eina af beinu aðferðunum sem um getur í reglugerð (EB) nr. 1516/2007
    • þekkja áhættu sem er á kælimiðilsleka eða losun í tengslum við hann
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • stjórna flóknum kælibúnaði
    • stilla sog- og frástreymisloka
    • afhríma með heitgasi
    • greina form kælimiðilsins (vökvi, gufa) og skilyrði (undirkældur, mettaður eða yfirhitaður) fyrir áfyllingu til að tryggja að aðferðin og magnið séu rétt
    • bregðast rétt við hættum sem geta skapast við rekstur kæli- og frystikerfa
    • færa dagsetningar í skrá yfir búnað og fylla út skýrslu um prófanir og eftirlit
    • ræsa og slökkva á þjöppu og hafa eftirlit með því að þjappan starfi rétt, m.a. með mælingum á meðan þjappan vinnur
    • útskýra við hvaða aðstæður einstakir kælimiðlar og búnaður hentar best
    • útskýra grunnstarfsemi þjöppu (m.a. stjórnun á afköstum og smurkerfi) og þá
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.